top of page
Search
Players


Vignir Vatnar Stefánsson
Vignir Vatnar er eini íslenski stórmeistarinn í hópi keppenda að þessu sinni. Hann var 6 ára gamall þegar hann vakti athygli manna og mér fannst strax athuyglsivert að hann skyldi velja drottn ingarpeð fyrir sinn upphafsleik. Björn Þorfinnsson var fyrsti þjálfari en mig minnir að það hafi verið árið 2010 sem Vignir kom til mín. Síðan þá höfum við víða ratað. Lengstu ferðirnar voru á heimsmeistaramót ungmenna 2014 í Durban, Suður-Afríku, millilending í Jóhannesarborg frá Londo

Helgi Ólafsson
15 hours ago


Dagur Ragnarsson
Dag ragnarsson hitti ég fyrst upp í Rimaskóla, Hann hefur sennilega verið 7 ára gamall. Ég þekkti til föður hans og afa. Hermann Ragnarsson var allt í öllu í Taffélagi Reykjavíkur á árunum í kringum heimsmeistaraeinvígiuð 1972 og oft var Ragnar sonur hans með honum. Dagur, Oliver Aron Jóhannesson og Jón Trausti Harðarson voru burðarásarnir í liði Rimaskóla sem hafði mikla yfirburði í skólakepppnum hér og í Norðurlandmótum unnu þeir líka marga góða sigra. Dagur kemur nú beint

Helgi Ólafsson
15 hours ago


Alexander Domalchuk-Jónasson
Við höfðum heyrat af þessum unga manni sem á íslenskan föður og úkraínska móður. Það stóð jafnvel til að myndi tefla fyrir Íslands hönd á norrænum ungmennamótum og það raungerðist strax haustið 2023 eftir innrás Rússa í Úklraínu í febrúar 2022. Ólíkt mörgum þeim sem komið hafa hingað til lands frá Lviv í Úkraínu ól hann aldur sinn í grennd við átakasvæðin í Odessa. Ég kynntist honum fyrst á HM ungmenna í Antalya í Tyrklandi 2022. Hann hafði undirbúið sig fyrir hverja skák með

Helgi Ólafsson
15 hours ago


Hilmir Freyr Heimisson
Kynni mín af Hilmi Frey hófust í Stúkunni árið 2010. Hann var átta ára og kominn á æfingu ásamt félögum sínum úr Salaskóla að því er virtist beint af knattspyrnuæfingu með Breiðablik í Fífunni. Foreldrarnir á kafi í myndlist eða knattspyrnu. En Hilmir var alveg ákveðinn þegar hann sagði mér einn daginn í Stúkunni að sér finndist miklu skemmtilegra að tefla en að vera í fótbolta. Í þeirri grein var hann líka bráðsnjall. Mynd sem birtist í Fréttablaðinu sýnir Hilmi berjast um b

Helgi Ólafsson
15 hours ago


Birkir Ísak Jóhannsson
Það er ljóst þegar slegið er upp í skákum Birkis í gagnagrunnum að hann teflt minna en aðrir keppendur á alþjóðlega Kópavogsmótinu. En í því sambandi er þó vert að hafa í huga að magn er ekki sama og gæði. Staðreyndin er sú að Birkir nýtur mikillar virðingar í sínum hópi vegna vísindalegrar nálgunar og skipulags sem minnir jafnvel á gamla heimsmeistarann Mikhael Botvinnik. Þegar fórum til að taka þátt í Ólympíumóti 16 ára og yngri í Konya í Tyrklandi haustið 2018 varð mér ljó

Helgi Ólafsson
16 hours ago


Bárður Örn Birkisson
Það er varla hægt að minnast á Bárð Örn án þess nefna einnig hin ágætu systkini hans, Björn bróðir sem þessa dagana sinnir nýfæddu barni og Freyju sem undanfarin ár hefur lagt meiri áherslu á sundíþróttina þar sem hún á mörg met. Okkar fyrsta ferðalag saman var á EM ungmenn til Porto Carras í Grikklandi 2015 en ári síðar voru bræðurnir valdir í lið Íslands sem tók þátt í Ólympíumóti 16 ára og yngri í Slóvakíu. Haustið 2017 efndi Skákskólinn til hópferðar á hið gríðarlega ster

Helgi Ólafsson
16 hours ago


Erlendu Keppendurnir
There has sometimes been discussion about whether it would be possible to make use of the Icelandic Team Chess Championship by organizing an international chess tournament alongside this popular team competition, thereby creating worthwhile opportunities for our strongest players. The international tournament in Kópavogur emerged from considerations of this kind. We have had good cooperation with individuals connected to their respective teams in the Premier Division: Helgi Á

Helgi Ólafsson
16 hours ago
bottom of page