top of page

Bárður Örn Birkisson


Það er varla hægt að minnast á Bárð Örn án þess nefna einnig hin ágætu systkini hans, Björn bróðir sem þessa dagana sinnir nýfæddu barni og Freyju sem undanfarin ár hefur lagt meiri áherslu á sundíþróttina þar sem hún á mörg met. Okkar fyrsta ferðalag saman var á EM ungmenn til Porto Carras í Grikklandi 2015 en ári síðar voru bræðurnir valdir í lið Íslands sem tók þátt í Ólympíumóti 16 ára og yngri í Slóvakíu. Haustið 2017 efndi Skákskólinn til hópferðar á hið gríðarlega sterka opna mót á eyjunni Mön. Bárður dróst á móti heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen í 1. umferð og tapaði eftir mikla baráttu. Hann er yfirleitt að finna í toppbaráttunni á mótum hér innanlands, varð í 2. - 4. sæti á nýafstöðnu Skákþingi Reykjavíkur sem lauk á dögunum og á Reykjavíkurskákmótunum hefur taflmennska hans vakið verðskuldaða athygli; Alexander Beljavskjí var með koltapað tafl gegn Bárði á Reykjavíkurmótinu 2016 en slapp með jafntefli kannski vegna þess að var ákveðin óvissa ríkti með það hvenær aukatími myndi bætast við á klukkuna eftir 40 leiki. En hinn öflugi pólski stórmeistari Gajewski slapp ekki jafn vel þegar hann tefldi við vel undirbúinn Bárð á þessu sama móti tveim árum siðar:

Bárður Örn Birkisson – Grzegorz Gajewski (Pólland)

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5 Rd7 4. a4 Rgf6 5. Rc3 g6 6. a5 a6 7. Bc4 h6 8. O-O Bg7 9. d3 O-O 10. h3 e5 11. Bd2 Rb8 12. Rd5 Rxd5 13. Bxd5 Rc6 14. Db1 Kh7 15. b4 cxb4 16. Bxb4 f5 17. Rd2 f4 18. f3 Rd4 19. Hf2 Bf6 20. c3 Rb5 21. Rc4 Bh4 22. Hd2 Df6 23. Rb6 Hb8 24. Db3 Bg3 25. Had1 Hd8 26. d4 exd4 27. cxd4 Dg7 28. Dd3 Bd7 29. Rxd7 Hxd7 30. Hc2 Hc7 31. Hxc7 Dxc7 32. e5 dxe5 33. dxe5 Dxe5 34. Be4 Df6 35. Dd7 Dg7

36. Bxg6+ Kxg6 37. Dg4 Kf6 38. Bc3+ Rxc3 39. Hd6+

- og svartur gafst upp.

Comments


© 2035 by Lead Arena Post. Powered and secured by Wix 

bottom of page