top of page

Sigtryggur

Sigtryggsjóður er helsti styrkaraðili Alþjóðlega Kópavogsmótsins – Ungir meistarar. Sigtryggur Sigurðsson var frægasti glímukappi Íslands, handhafi Grettisbeltisins og Glímukóngur Íslands þrisvar sinnum. Þá vann hann Skjaldarglímu Ármanns sjö sinnum. “Sigtryggur vann,” er hugtak sem öðlaðist víðtæka merkingu í íslenskum keppnisgreinum allt frá því að Sigtryggur lagði mótherja sína hvað eftir annað í sjónvarpssal RÚV á árunum í kringum 1970. Hann var einnig sigursæll briddsspilari og málarameistari að atvinnu. Sigtryggur hreifst af ungmennastarfi skákhreyfingarinnar á Íslandi og ánafnaði eigur sínar til eflingar skákiðkunar ungmenna á Íslandi. Stjórn Sigryggssjóðs telur að alþjóðlega Kópavogsmótið – Ungir meistarar falli vel að markmiðum þeim sem stefnt var að í upphafi og er stuðningur stjórnarinnar við þetta mótahald lofsverður.

 
 
 

Comments


bottom of page