Birkir Ísak Jóhannsson
- Helgi Ólafsson

- 16 hours ago
- 2 min read

Það er ljóst þegar slegið er upp í skákum Birkis í gagnagrunnum að hann teflt minna en aðrir
keppendur á alþjóðlega Kópavogsmótinu. En í því sambandi er þó vert að hafa í huga að magn er ekki sama og gæði. Staðreyndin er sú að Birkir nýtur mikillar virðingar í sínum hópi vegna vísindalegrar nálgunar og skipulags sem minnir jafnvel á gamla heimsmeistarann Mikhael Botvinnik. Þegar fórum til að taka þátt í Ólympíumóti 16 ára og yngri í Konya í Tyrklandi haustið 2018 varð mér ljóst að Birkir kann vel að undirbúa sig enda náði hann þar góðum árangri. Í Covid-faraldrinum söðlaði hann um skráði sig á afreksbraut í MK með skák sem aðalgrein. Við hittumst á Zoom tvisvar/þrisvar í viku og ég var eiginlega alveg gáttaður yfir umfangsmikilli þekkingu hans. Vignir Vatnar hefur margsinnis þakkað Birki fyrir hugmyndir sem náðu fram á taflborðið í mikilvægum skákum. Sl. haust haust tefldi Birkir á
EM taflfélaga. Þar gekk á ýmsu en þegar hann settist niður til að tefla fyrir Blika á Íslandsmóti
skákfélaga hlaut hann 3½ vinning úr fjórum skákum. Eftirfarandi skák er úr þeirri keppni. Birkir heldur þræði allan tímann og vinnur eftir snjalla riddarafórn:
Íslandsmót skákfélaga 2025-´26:
Birkir Ísak Jóhannsson – Davíð Kjartansson
Bogo-indversk vörn
1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. d4 Bb4+ 4. Bd2 a5 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 d6 7. Rc3 Rbd7 8. e4 e5 9. O-O-O exd4 10. Rxd4 O-O 11. Kb1 Rc5 12. f3 a4 13. g4 Be6 14. h4 Rfd7 15. Be2 Re5 16. Rd5 c6 17. Re3 Df6 18. Rdf5 Bxf5 19. Rxf5 Hfd8 20. f4 Rg6 21. Bf3 Rb3 22. De3 Re7 23. Rg3 De6 24. Dc3 c5 25. Rh5 Rd4 26. Hxd4 cxd4 27. Dxd4 f6 28. g5 Kf7 29. Hg1 Hac8

30. Rxg7 Kxg7 31. gxf6+ Kf7 32. Hg7+
- og svartur gafst upp.



Comments