Vignir Vatnar Stefánsson
- Helgi Ólafsson

- 1 day ago
- 2 min read
Updated: 17 hours ago

Vignir Vatnar er eini íslenski stórmeistarinn í hópi keppenda að þessu sinni. Hann var 6 ára gamall þegar hann vakti athygli manna og mér fannst strax athuyglsivert að hann skyldi velja drottn ingarpeð fyrir sinn upphafsleik. Björn Þorfinnsson var fyrsti þjálfari en mig minnir að það hafi verið árið 2010 sem Vignir kom til mín. Síðan þá höfum við víða ratað. Lengstu ferðirnar voru á heimsmeistaramót ungmenna 2014 í Durban, Suður-Afríku, millilending í Jóhannesarborg frá London eftir 12 tíma flug. Í Durban fæddist afbrigði í skandínavíska leiknum sem Vignir taldi að hafa skotið sér yfir yfir 2400 elo stig, 13 ára gömlum. Afrekaskrá hans er löng og verður ekki rakin hér en stórmeistaratitillinn var í höfn árið 2023 og Íslandsmeistaratitlar komu 2023 og 2025. Vignir hefur síðan þreifað vel á þeim möguleikum/viðskiptatækifærum, sem skáklistin býður uppá. Með hjálp vinar síns, Bendikts Briem, setti hann af stað vefsíðuna VignirVatnar.is sem hefur notið mikilla vinsælda ungu kynslóðarinnar og svo hefur hann staðið fyrir fjölsóttum hraðskákmótum og fengið til liðs við sig styrktaraðila. Líftstíll hans tekur mið að því sem gengur og gerist meðal ungra
manna í dag; hann fer reglulega í ræktina, hefur náð talsverðri leikni í snóker og pílukasti, mætir snyrtilega klæddur til kepppni og í viðmóti er hann yfirleitt glaður og reifur. Eftirfarandi skák var tefld á EM sl. haust landsliða í Batumi í Georgíu er athyglisverð fyrir þá sök að í hefðbundnu peðakapphlaupi kóngsindversku varnarinnar er svart peð statt á h4sem hlaut að gera framrásina g5-g4 erfiðara. Þar kom að Naditsch fórnaði biskup á h3 og í hönd fór flókin taktísk og strategísk barátta. “Vélarnar” vildu leika 37. Bxc5 en Vignir valdi mannlegri leið. Á einum stað átti svartur ”tölvuleiki” tvo sem hefðu tryggt jafntefli, 45. … Hh7! 46. Dc2 Kg7! En hann valdi 45. … Hg7 og fékk ekki bjargað taflinu eftir það:
EM landsliða 2025:
Vignir Vatnar Stefánsson – Arkady Naditsch
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rf3 O-O 6. Be2 Rbd7 7. O-O e5 8. Be3 De7 9. Dc2 c6 10. d5 c5 11. Rd2 h5 12. h3 Rh7 13. a3 h4 14. b4 f5 15. f3 b6 16. Bd3 f4 17. Bf2 Rg5 18. Hfb1 Rf6 19. bxc5 bxc5 20. Bf1 Rh5 21. Da4 Bf6 22. Hb2 Rg3 23. Hab1 a6 24. Da5 Dg7 25. Ra4 Bd8 26. Dc3 Bxh3 27. gxh3 Dd7 28. Rb6 Bxb6 29. Hxb6 Rxh3+ 30. Kg2 Rg5 31. Kh2 Rxf1 32. Hxf1 Hf7 33. Hfb1 Ha7 34. Kg1 Rh3+ 35. Kg2 g5 36. Hh1 g4 37. Bxh4 Hg7 38. Be1 gxf3+ 39. Kf1 Hg1+ 40. Hxg1 Rxg1 41. Bf2 Dh3+ 42. Ke1 Dh1 43. Bxg1 Dxg1+ 44. Rf1 Dg2 45. Dd3

45. … Hg7 46. Hb3 Hg3 47. Rxg3 Dxg3+ 48. Kd1 Dg1+ 49. Kc2 Dg2+ 50. Kc3 f2 51. Hb1 Kg7 52. Hf1 f3
53. Kd2 Kg6 54. Ke3 Dg3 55. Kd2 Dg2 56. Db1 Kh5 57. Ke3 Kg4 58. Hxf2 Dg3 59. Dh1 Df4 60. Kd3 Dg3
61. Dh2
- og svartur gafst upp.



Comments