top of page
Search

Keppnisstaður - 2026


Keppnisstaður alþjóðlega Kópavogsmótsins 2026 er Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Salurinn hefur hýst mörg skákmót frá því að skákdeild Breiðabliks tók til starfa um 2010. Salurinn er einnig aðalæfingaaðstaða skákdeildarinnar. Við vonumst eftir að áhugasamir kíki í heimsókn meðan á móti stendur og fylgist með skákunum enda er þetta gott tækifæri fyrir okkar efnilegu skákmenn að etja kappi við mjög sterka skákmenn frá evrópu. Það verður kaffi og veitingar á staðnum og góð stemning.

 
 
 

Comments


bottom of page