top of page
Search

Hilmir Freyr Heimisson

Updated: 19 hours ago


Kynni mín af Hilmi Frey hófust í Stúkunni árið 2010. Hann var átta ára og kominn á æfingu ásamt félögum sínum úr Salaskóla að því er virtist beint af knattspyrnuæfingu með Breiðablik í Fífunni. Foreldrarnir á kafi í myndlist eða knattspyrnu. En Hilmir var alveg ákveðinn þegar hann sagði mér einn daginn í Stúkunni að sér finndist miklu skemmtilegra að tefla en að vera í fótbolta. Í þeirri grein var hann líka bráðsnjall. Mynd sem birtist í Fréttablaðinu sýnir Hilmi berjast um boltann við Magnús Carlsen á stund milli stríða þegar Opna stórmótið á Mön fór fram haustið 2017. Hilmir fluttist til Patreksfjarðar og síðar til Danmerkur en nú er hann aftur kominn heim. Hann er alveg magnaður skákmaður þegar honum tekst vel upp. Í eftirfarandi skák sem tefld var á Evrópumóti landsliða í Budva, Svartfjallalandi, vorum við að kljást við Norðmenn sem stilltu upp með Magnús Carlsen á 1.

borði. Það var auðvitað við ramman reip að draga fyrir Hjörvar Stein sem tapaði en Vignir gerði jafntefli á 3. borði og Hannes Hlífar og Hilmir unnu á 2. og 4. borði. Við sigruðum því Norðmenn 2½:1½ og Dani síðar með sömu tölum. Hilmir tefldi byrjun þessarar skákar óaðfinnanlega og ljóst var Haasen var lentur í krappri vörn, sérstaklega eftir hinn óþægiulega peðsleik, 27. a5. Í riddaraendataflinu gat hann unnið með því að leika 33. Rf5 í stað þess að hirða peðið á e4, eftir 33. … Rxf5 34. gxf5 Kb5 á hvítur hinn útsmnogna leik, 35. Kc1! og peðsendataflið er unnið á hvítt. Magnús Carlsen ræddi við hann í þaula eftir skákina og benti á betri leiðir fyrir hnípinn landa sinn sem stóð þar hjá. Þetta var sætur sigur:


EM landsliða 2023:

Hilmir Freyr Heimisson – Tor Fredrik Haasen (Noregur)

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Hg1 e5 7. Rb3 Be6 8. g4 d5 9. exd5 Rxd5 10. Rxd5 Dxd5 11. Dxd5 Bxd5 12. Be3 Rc6 13. c3 O-O-O 14. Rd2 h6 15. a4 Be7 16. Bc4 Bg5 17. Ke2 Bxe3 18. fxe3 Ra5 19. Bxd5 Hxd5 20. Ha2 Kc7 21. b4 Rc6 22. Re4 Hdd8 23. h4 f6 24. h5 b6 25. Hd1 Hxd1 26. Kxd1 Re7 27. a5 Hd8 28. Ke2 Rc6 29. axb6+ Kxb6 30. Hd2 Hxd2 31. Kxd2 Re7 32. Rg3 e4

33. Rxe4 f5 34. gxf5 Rxf5 35. c4 Re7 36. Kc3 Kc6 37. Kd4 Rf5 38. Kd3 Re7 39. Rg3 g6 40. hxg6 Rxg6

41. Kd4 Re7 42. e4 Kb6 43. Ke5 Rc6+ 44. Kd6 Rxb4 45. c5 Kb7 46. e5 a5 47. Rf5 a4 48. e6 a3 49. e7 a2 50. e8(D) a1(D) 51. Db5+ Ka8 52. Dxb4 Df6+ 53. Kc7 Df7+ 54. Kc6 De8+ 55. Kd5 Dg8+ 56. Ke5 Dh8+

57. Kf4 Df6 58. De4+ Ka7 59. De7+ Dxe7 60. Rxe7 Kb7 61. Ke5 Kc7 62. Kd5 h5 63. Rf5 Kd7 64. c6+ Kc7 65. Kc5

– svartur gafst upp.

 
 
 

Comments


© 2035 eftir Lead Arena Post. Knúið áfram og öruggt af Wix.

bottom of page