Erlendu Keppendurnir
- Helgi Ólafsson

- 18 hours ago
- 4 min read

Það hefur stundum verið rætt hvort ekki væri hægt að nýta Íslandsmót skákfélaga með því að efna til alþjóðlegs skákmóts í kringum þessa vinsælu flokkakeppni og finna þannig verðug verkefni fyrir okkar bestu menn. Alþjóðlega mótið í Kópavogi sprettur upp af vangaveltum af því tagi. Við höfum átt ágæta samvinnu við menn sem hafa tengsl við sín lið í Úrvalsdeildinni, Helga Árnason, Þorstein Þorsteinsson, Margeir Pétursson og Oddgeir Ottesen. Þeir fjórir skákmenn sem taka þátt í Kópavogsmótinu tefla með TV, TR og Fjölni á Íslandsmóti skáklfélaga 2025-´26. Þeir eru:
Jaime Santos Latasa er frá Spáni fæddur 3. júlí 1996 og verður þrítugur seinna á þessu ári. Hann er með 2626 elo stig en hefur hefur hæst náð 2680 elo stigum og fer nú fimmti stigahæsti Spánverjinn. Hann varð Evrópumeistari einstaklinga í at-skák árið 2022. Af miklum fjö0lda skák sem hann hefur teflt má ráða að hann sé sterkur í byrjunum og í flestum þáttum skákarnnar ekki síot í tæknilegum stöðum. Hann teflir I flokkakeppnum víð og ein skák úr þýsku deildinni fylgir hér:
Þýska Bundesligan 2024:
Jaime Santos Latasa – Nihal Sarin
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. Dd3 Rxd4 7. Dxd4 b5 8. Bf4 Bb7 9. O-O-O Rf6 10. f3 Hc8 11. Da7 Bc6 12. Re2 Rh5 13. Be3 Dc7 14. Dxc7 Hxc7 15. e5 f5 16. Hg1 g6 17. Rd4

17. … Bc5 18. Rxf5 Bxe3+ 19. Rxe3 Ke7 20. Hd4 Hf8 21. Kd2 Hf4 22. Hxf4 Rxf4 23. g3 Rd5 24. f4 Rb6 25. Bd3 Ra4 26. b3 Rc5 27. Rg4 d6 28. He1 a5 29. exd6+ Kxd6 30. Re5 Be8 31. a3 Ke7 32. Bf1 Hc8 33. Rf3 Hd8 34. Ke3 Kf6 35. Rd4 b4 36. axb4 axb4 37. Ha1 e5 38. fxe5 Kxe5 39. Rf3 Kf6 40. Ha5 Hc8 41. Rd2 Kg7 42. Bc4 Kh6 43. Rf3 Bd7 44. Re5
– og svartur gafst upp.
Helgi Árnason liðsstjóri hefur byggt upp sitt lið með gömlum nemendum úr Rimaskóla og
landsliðsmönnum frá Litháen. Helgi hefur latið þess getið hversu gott hefur verið að eiga við Litháana enda voru þeir fyrstir til að staðfesta þátttöku sína í Kópavogsmótinu. Valery Kazakovskiy er fæddur 14. júlí árið 200 í Hvíta Rússandi en hefur á undanförnum árum teflt fyrir Litháen.
Ólympíumótið í Chennai 2022:
Valery Kazakovskiy – Vladimir Onischuk
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. h3 O-O 6. Be3 c6 7. Rf3 Rbd7 8. g4 c5 9. Bg2 Re8 10. Dd2 Rc7 11. Hd1 b6 12. Bh6 He8 13. Bxg7 Kxg7 14. d5 f6 15. h4 Hf8 16. Re2 Re5 17. Rxe5 dxe5 18. g5 Dd6 19. h5 fxg5 20. Dxg5 Df6 21. Dg3 g5 22. h6 Kh8 23. Hh5 Hg8 24. Hd3

24. … g4 25. Dxe5 Re8 26. Dc3 Dxc3+ 27. Rxc3 Rd6 28. b3 Hb8 29. e5 Rf5 30. Rb5 Bd7 31. e6 Bxb5 32. Hxf5 Be8 33. Hg3 b5 34. Hf4 Bh5 35. cxb5 Hxb5 36. f3 Ha5 37. a4 c4 38. fxg4 cxb3 39. Hxb3 Bxg4 40. Kf2 Hc5 41. Be4 Hc4 42. Hg3 a5 43. Hgxg4 Hxg4 44. Hxg4 Hc2+ 45. Kg3 Hg2+ 46. Kf4 Hf2+ 47. Kg5
– og svartur gafst upp.
Paulius Pultinevicius má heita þrautreyndur á Íslandsmóti skákfélaga enda harður í horn að taka og var auðvitað í sigurliði Fjölnis á síðasta Íslandsmóti. Hann varð stórmeistari aðeins 18 ára gamall, fæddur 24. nóvember 2001, og hefur átt fast sæti í ólympíuliði Litháa undanfarið.
Ólympíumótið í Chennai 2022:
Paulius Pultinevicius – Rasmus Svane
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 dxc4 7. e3 c5 8. Bxc4 cxd4 9. exd4 Rc6 10. O-O O-O 11. He1 Rh5 12. Bxe7 Rxe7 13. Db3 a6 14. a4 Rf6 15. Had1 Rc6 16. d5 exd5 17. Rxd5 Rxd5 18. Bxd5 Df6

19. Rd2 Rd4 20. Dc3 Rf5 21. Dxf6 gxf6 22. Rc4 Hb8 23. Rb6 Kg7 24. b4 Hd8 25. a5 Be6 26. Bxe6 Hxd1
27. Hxd1 fxe6 28. Hd7+ Kg6 29. Kf1 e5 30. Ke2 Rd4+ 31. Kd3 Kf5 32. Kc4 Rb5 33. Kd5 Hg8 34. g3 Hg4 35. Kc5 Hd4 36. Rd5 Rc3 37. Re3+ Ke4 38. Hxb7 Kd3 39. Kb6 Hxb4+ 40. Kxa6 Hd4 41. Hb3 Kd2 42. Kb6 Hd8 43. Kc7 Ha8 44. Kb7 He8 45. a6 He7+ 46. Kb6 Re4 47. a7 He8 48. Rc4+ Kc2 49. Ha3 Rxf2 50.Rd6 Hd8 51. Ha2+ Kd1 52. Hxf2 Hxd6+ 53. Kc7
– og svartur gafst upp.
Úkraínumaðurinn Mykhaylo Oleksienko, hefur ekki teflt mikið undanfarið. Hann er búsettur í einni af höfuðborgum skákarinnar í Lviv í vestuhluta Úkraínu, en borgin hefur ekki frekar en aðrir staðir farið varhluta af árásarstríði Rússa. Olekisienko er stærðfræðingur að mennt en hefur umfdanfarin ár einbiett sér að skákkennslu og þjálfun og nytur mikillar virðingar á því sviði.
Hann er elsti keppeandi mótsins í Kópavogi, fæddur 30. september 1986:
Þýska Bundesligan 2018:
Mykhaylo Oleksienko - Nils Grandelius
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Re2 Rf6 3. Rbc3 d6 4. g3 Rc6 5. Bg2 e6 6. d4 cxd4 7. Rxd4 Bd7 8. O-O Be7 9. Rce2 Rxd4 10. Rxd4 Hc8 11. Dd3 Rg4 12. De2 Db6 13. Dxg4 Dxd4 14. c3 h5 15. Df3 Dc4 16. Be3 a6 17. Hfc1 e5 18. b3 Dc7 19. Dd1 h4 20. c4 hxg3 21. hxg3 Bc6 22. b4 Dd7 23. Dd3 b5 24. cxb5 Bxb5 25. Hxc8 Dxc8 26. Dd5 O-O 27. Hc1 Dd7 28. Kh2 Dg4 29. Hc7 Dh5+ 30. Kg1 Bd8 31. Ha7 Bg5 32. Bxg5 Dxg5 33. Hc7 Dd8 34. Db7 Dg5 35. a4 Bxa4 36. Dxa6 Dd8 37. Db7 Bb5 38. Bh3 Ba6 39. Da7 Bd3 40. Hc8 Df6 41. Hxf8+ Kxf8 42. Da8+ Ke7 43. Db7+ Kf8 44. b5 g6 45. Bf1 Bxf1 46. Kxf1 Df3 47. Kg1 f5

48. Dd5 Ke7 49. b6 f4 50. gxf4 Dg4+ 51. Kf1 Dh3+ 52. Ke2 Dg4+ 53. Kd3 Df3+ 54. Kc4 De2+ 55. Kb4 Dxf2 56. b7 Db2+ 57. Db3 Dd4+ 58. Kb5 Dc5+ 59. Ka6 Dc6 60. Db6 Dc4+ 61. Db5 Da2+ 62. Kb6 Df2+ 63. Kc7 Da7 64. fxe5 dxe5 65. Kc8
– og svartur gafst upp.



Comments