top of page
Search

Dagur Ragnarsson


Dag ragnarsson hitti ég fyrst upp í Rimaskóla, Hann hefur sennilega verið 7 ára gamall. Ég þekkti til föður hans og afa. Hermann Ragnarsson var allt í öllu í Taffélagi Reykjavíkur á árunum í kringum heimsmeistaraeinvígiuð 1972 og oft var Ragnar sonur hans með honum. Dagur, Oliver Aron Jóhannesson og Jón Trausti Harðarson voru burðarásarnir í liði Rimaskóla sem hafði mikla yfirburði í skólakepppnum hér og í Norðurlandmótum unnu þeir líka marga góða sigra. Dagur kemur nú beint frá Skákþingi Reykjavíkur þar sem, hann vann allar skákir sínar en gerði eitt jafnteli með ½ vinnings yfirsetu. Hann var valinn í landslið Islands sem tefldi á EM landsliða í Batumi í Georgíu sl. haust. Ég hef margsinnis ferðast með Degi á hin ýmsu mót, til Georgíu á EM unmenna 2024, til Rússalands á Aeroflot-mótið í Moskvu 2017, á opna mótið á Mön 2018. Hann hefur alltaf verið ófeiminn við að viðra hugmyndir sínar í hinum aðskiljanlegustu byrjunum og framfarir hans undanfarið eru augljósar. Í eftirfarandi skák leggur hann öflugan franskan stórmeistara að velli. Byrjunin gaf þó engin sérstök fyrirheit en eftir að Frakkinn hörfaði með drottningu sína til d8 náði Dagur góðum sóknarfærum og eftir 20. Re4, sem hótaði 21. Rf6+ gxf6 22. Dg6+ o.s.frv., átti svartrur í miklum eriðleikum. En sá franski barðist vel og sigurinn hafðist í löngu og ströngu endatafli þar frípeð Dags á a-línunni réði úrslitum:


Reykjavíkurskákmótið 2019:

Dagur Ragnarsson – Matthieu Cornette (Frakkland)

Nimzo-indversk vörn

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 O-O 5. Bg5 h6 6. Bxf6 Dxf6 7. a3 Bxc3 8. Dxc3 d6 9. e3 Rc6 10. Bd3 e5 11. Re2 exd4 12. exd4 a5 13. O-O a4 14. Had1 He8 15. Dc2 Bd7 16. Be4 Ra5 17. Rc3 Dd8 18. c5 Db8 19. Bd5 Da7 20. Re4


20. … Be6 21. Bxe6 Hxe6 22. d5 Hg6 23. cxd6 cxd6 24. Dxa4 Da6 25. Hc1 b5 26. Db4 Rc4 27. Rc3 Dc8

28. Re2 Hb8 29. Rg3 Dd8 30. Hfe1 Re5 31. Hc3 Db6 32. Rf5 Hf6 33. De4 He8 34. Hee3 g6 35. Dd4

Hb8 36. Dxb6 Hxb6 37. Rxd6 b4 38. Hc8 Kh7 39. a4 Rg4 40. Re4 Hxf2 41. Rxf2 Rxe3 42. Hc6 Rxd5 43.

Hxb6 Rxb6 44. a5 Rd5 45. Rd3 Kg7 46. a6 b3 47. a7 Rc7 48. Kf2 Kf6 49. Ke3 Ke6 50. Rc5 Kd5 51. Rxb3

Kc6 52. Ke4 f6 53. Rd4 Kb7 54. Rf3 Kxa7 55. Rh4 g5 56. Rf5 h5 57. Rg7 h4 58. Rh5 Re6 59. Rxf6 Kb6

60. Ke5 Rc5 61. Kf5 Rd3 62. Kxg5 Re1 63. Rd5 Kc5 64. Rf4 h3 65. gxh3 Rf3 66. Kf5 Rxh2 67. h4 Rf1

68. h5 Rg3 69. Kg6 Rxh5 70. Kxh5 Kc4 71. Kg4 Kb3 72. Rd3 Kc2 73. b4

– svartur gafst upp.

 
 
 

Comments


© 2035 eftir Lead Arena Post. Knúið áfram og öruggt af Wix.

bottom of page