top of page
Search

Alexander Domalchuk-Jónasson


Við höfðum heyrat af þessum unga manni sem á íslenskan föður og úkraínska móður. Það stóð jafnvel til að myndi tefla fyrir Íslands hönd á norrænum ungmennamótum og það raungerðist strax haustið 2023 eftir innrás Rússa í Úklraínu í febrúar 2022. Ólíkt mörgum þeim sem komið hafa hingað til lands frá Lviv í Úkraínu ól hann aldur sinn í grennd við átakasvæðin í Odessa. Ég kynntist honum fyrst á HM ungmenna í Antalya í Tyrklandi 2022. Hann hafði undirbúið sig fyrir hverja skák með þjálfara sínum, Emil Mirzoev, sem var raunar víðsfjarrri vettvangi keppninnar. En á hverju kvöldi fórum við yfir skák dagsins og spjölluðum heilmikið. Skákkúltúr hans var á háu plani enda náði hann þarna sínum fyrsta áfanga að alþjóðlegum meistaratitli, 17 ára gamall. Domalchuk var valinn í íslenska landsliðið sem tók þátt í EM landsliða í Batumi sl. haust. Hann er traustur skákmaður og er sannarlega framtíðarmaður í skáklífi Íslendinga. Eftirfarandi skák tefldi hann á Íslandsmótinu 2023 og

andstæðíngur hans ekki af verri endanum. Allt handbragð hans er vandað en Hjörvar sýndist mér leggja helsti mikið á stöðuna í byrjun tafls og 17. b6! er óþægileg stunga:


Skákþing Íslands 2023

Alexander Domalchuk-Jónasson - Hjörvar Steinn Grétarsson

Enskur leikur

1. c4 e5 2. Rc3 Rc6 3. Rf3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 d6 6. d3 Rge7 7. Hb1 a5 8. a3 f5 9. Bd2 O-O 10. b4 axb4

11. axb4 De8 12. Dc1 Bd7 13. h4 f4 14. b5 Rd8 15. Rg5 h6 16. Rge4 Re6 17. b6 Bc6 18. bxc7 Dd7 19.

Rd5 Hae8 20. Bb4 Rf5 21. g4 Rfd4 22. Bxd6 f3

( STÖÐUMYND 3 )

23. Bxf3 Bxd5 24. cxd5 Rf4 25. Dd2 Rxd5 26. Da2 Hxf3 27. Dxd5 Hf7 28. Hxb7 Hc8 29. Hb8 Dxg4 30.

f3 Dd7 31. Rc5 Df5 32. De4

- og svartur gafst upp.

 
 
 

Comments


© 2035 eftir Lead Arena Post. Knúið áfram og öruggt af Wix.

bottom of page